Gulla en Guatemala

18.04.2008 21:30:58 / gullasta

komin tími á blogg.........

jæja sykurpúðar!
Ég veit að ég hef ekki verið neitt sérstaklega dugleg að blogga upp á síðkastið en hér kemur eitt svona með því helsta.......
Ég kom heim frá Spáni 22.mars og var það bara mjög góð ferð. Ég sá mun meira af Spáni í þessari ferð en þeirri sem ég fór í 2006....... þá sá maður aðallega skemmtistað:haha: ég fékk mér meðal annrs nýtt tattoo og svona, mjög flott!
Þegar ég kom heim fór ég bara beint að vinna þar til 28.mars að ég fór í hnéspeglun, mjög gaman.... Þannig að síðustu vikurnar hef ég bara verið að láta mér leiðast heima í veikindafríi nema að ég fór og hitti stelpurnar Helenu, Heiðdísi, Töru, Dagný o.fl. um síðustu helgi og skelltum við okkur á Ný dönsk, geggjað gaman! Það klikkar aldrei þegar þessi hópur kemur saman.....:lol:
En Þegar ég sá fram á að komast loksins aftur í vinnuna fékk ég þessa líka rosa helv.... flensu og er búin að liggja í henni síðan á miðvikudaginn!!! Ekki gaman.....

Elsku mamma mín átti svo afmæli í fyrradag, orðin fimmtug kellan. Hún skellti sér bara til Barcelona í tilefni dagsins, stæll á gömlu.
Til hamingju með daginn mamma mín!

Við Kiddi erum svo búin að fá íbúð í búseta og erum að flytja þangað um mánaðamótin næstu. Þetta er geggjað flott 116 fm íbúð í naustahverfi og erum við bara alsæl með það......
En þetta er svona það helsta sem ég man eftir í augnablikinu......

mússí múss sykurpúðar.......

kveðja 
Gullið:lol: 


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 13:45:09 / gullasta

Nú er ég farin.......

Jæja sykurpúðar hér er eitt ótrúlega stutt bara til að skrifa eitthvað........ Það er ekki mikið að frétta. Ég fór á árshátíð Akureyrarbæjar 1.mars og var það bara ógeðslega gaman!!!:lol: Þakka stelpunum mínum þeim Diddú, Helenu, Huldu sys og fleirum fyrir æðislega skemmtun! :haha:
Birna sykurpúði kom í síðustu viku og var ógó gaman að sjá hana loksins hún átti afmæli í síðustu viku 25 ára stelpan, lov jú beib!;)
Ég er að fara til Spánar á morgun það verður geggjað gott að komast aðeins úr kuldanum hérna.... Það jafnast ekkert á við það að skella sér í gott sólbað............8):d

any who ætla að halda áfram að vinna, afsakið bloggletina í mér.....
kveðja Gulls8)

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 03:04:30 / gullasta

Rétt er það.....

Já ég er á næturvöktum eina ferðina enn og þá er nú venjan að skella inn eins og einu bloggi.........:lol:

Þó að ekki hafi nú margt markvert gerst í mínu lífi þá er það nú kannski helst að ég er komin með nýtt plan fyrir nánustu framtíð og haldið ykkur fast............ Ég er að hugsa um að gerast dagmamma!!!! Já þannig er mál með vexti að ég er að missa mig! Mig langar svo að breyta til og hefur lengi langað til að prófa að vinna með börn en ekki tímt að fara að vinna á leikskóla sem er nánast sjálfboðavinna svo ég ákvað að athuga þetta með dagmömmustarfið og það er þannig að það borgar töluvert betur enn leikskóli og ég þarf ekki að fara á námskeiðin til að fá réttindin af því það vill svo heppilega til að ég er sjúkraliði og get því sennilega bara fengið réttindin núna strax!!! :haha: En ég get nú reyndar ekki haft börn þar sem ég bý núna en það stendur til bóta því ég og Kiddi minn erum að velta því fyrir okkur hvort við ættum að reyna að kaupa okkur........... Allavega ætlum við ekki að vera í þessu frímerki öllu lengur, ég er að klikkast get varla skipt um skoðun þarna!!8|

En þið eruð líklega öll að velta því fyrir ykkur hvað varð um fangavörðinn....... ég komst að því að ég myndi lækka töluvert í launum við það og því er það ekki inni í myndinni lengur........

Annars fór ég á djammið um þar síðustu helgi með Diddú og Helenu, þessum elskum og skemmtum við okkur konunglega þar til allskonar heimskt fólk klúðraði því fyrir okkur!!!! Diddú litla var barin og tók því eins og sönn dama......... hahahahahah:haha: og ég lenti í rifrildi við Bjögga, mjög spes rifrildi sem ég áttaði mig aldrei almennilega á, Bjöggi var á einhverju trippi!!! Helena greyið kom af fjöllum í sambandi við allt sem gekk á........heheh

 En allavega þá eyddum ég og Diddú sunnudeginum í að vorkenna henni með stóru kúluna sína á hausnum og ég hló að sjálfsögðu nokkuð mikið af henni líka!!:haha: Þetta var allt frekar skondið............

En þetta er líklega allt sem ég hef að segja í bili........

Dugleg að kvitta elskurnar, skilja eftir spor!!!! :D

kveðja

Gulla snilli


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 01:10:57 / gullasta

Gleðilegt árið!

Gleðilegt árið öllsömul og takk fyrir það gamla! :) það er líklega löngu kominn tími á nýtt blogg og þar sem ég er á næturvakt og hef aðgang að tölvu þá er líklega tilvalið að skella inn nýjársbloggi.........:D

Árið einkenndist af ferðalögum, ævintýrum og ýmsum róttækum breytingum í mínu lífi.... Eins og þið vitið flest þá byrjaði ég árið á að fara til Guatemala og lærði margt nýtt og kynntist mörgu góðu og skemmtilegu fólki......... Ég ferðaðist mikið fór til New York, Guatemala, El Salvador, Honduras og Kúbu. Ég lærði köfun, klifraði upp á pýramída Maya indíánanna synti í karabíska- og kyrrahafinu og ótalmargt fleira. Þetta er að sjálfsögðu reynsla og upplifun sem verður ekki metin til fjár og vil ég þakka Huldu og Hemma og svo að sjálfsögðu Matta, Stefaníu og Klöru fyrir þennan yndislega tíma!!:D

Þegar ég kom svo heim í Maí byrjaði ég að vinna. Fór svo á þjóðhátíð í Eyjum og skemmti mér aldeilis konungleg, mæli eindregið með þessari mestu drykkjuhátíð Íslands!! :haha: En fljótlega uppúr því byrjaði ég með honum Kidda mínum en við vorum þó búin að vera góðir vinir í nokkur ár.

Í nóvember fór þessi elska á skeljarnar og við trúlofuðum okkur og fluttum í litlu íbúðina í Tjarnarlundi þar sem ríkir bara botnlaus hamingja.......:haha: mússí múss........:D

Núna styttist í að ég, Kiddi, pabbi, Stína, Hemmi, Jón og Ólína förum til Spánar, 12.mars, það verður ekkert smá gaman.............. :D

Svo er ég búin að sækja um nýja vinnu sem fangavörður í nýja fangelsinu sem á að opna núna 1.mars þannig að kannski ég gerist fangavörður!! :haha: Sjáum til.........

En jæja það verður gaman um næstu helgi við ætlum að hittast ég, Helena, Diddú, Heiðdís og ungfrú Ingólfstorg og hafa stelpukvöld og kíkja út á lífið það getur ekki klikkað þegar þessi hópur kemur saman............:haha:

Er þetta ekki orðið ágætt í bili? Veriði nú dugleg að kvitta elskurnar!!!

kveðja

Sykurpúðinn

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 02:31:19 / gullasta

Jóla, jóla..................

Jæja þá styttist óðum í jólin og ég er að vinna svo ég ákvað að reyna að blogga aðeins þar sem ég er ekki enn búin að fá mér tölvu. En það mun fá að bíða þangað til eftir áramót, blessuð jólin eru víst nógu dýr....... ;)

Ég er alltaf að vinna þessa dagana. Við erum nefnilega undirmannaðar í vinnunni og nóg af aukavöktum í boði og því verð ég að vinna öll jólin fram að gamlársdegi en ég harðneitaði að taka aukavaktir gamlárskvöld og nýjárskvöld.......... Jæja ég ætti þó að fá eitthvað sem líkist mannsæmandi launum í janúar og Febrúar.......:)

Ég er búin að vera að reyna að kaupa jólagjafir og hefur það gengið misvel en það fer nú samt að sjá fyrir endann á þessu og ég er líka að verða búin að skrifa jólakort.......... Já gott fólk ég hef hripað jólakveðjur á nokkur kort þetta árið, ótrúlegt en satt!:haha: Svo er að sjá hvort mér tekst að koma þeim út fyrir jól, það er aftur á móti allt annað mál...........:o

nú er próflokadjammshelgi og ég í vinnunni.......:S Einmitt þegar allir eru að djamma og allt að gerast þá er ég föst í vinnunni á næturvöktum af öllum vöktum! Ótrúlega gremjulegt, aaaarg!!!! Ég væri alveg til í smá frí núna, þettta er búið að vera eins og Kleppur hérna, allt í klessu!

En að góðum og skemmtilegum fréttum þá er mamma komin heim af spítalanum!!! jeeeeiii :) Hún er nú kannski ekkert úber hress, frekar þróttlítil og horuð mjög en það gengur allt í rétta átt og gott að hún er komin heim þessi elska..........:haha:

Annars er ég að hugsa um að skella mér á tónleika hjá Karlakór Eyjafjarðar hér í Hlíð kl.15.00 á morgun ef ég verð mjög hress eftir þessa vakt. Ég elska að hlusta á karlakóra og ekki er þessi nú af verri endanum....... Enda syngur pabbi gamli með þeim!! :lol:

Svo er það bara vinna, vinna og að reyna að klára allt fyrir jólin. Hlakka geggjað mikið til Gústa mín kemur heim eftir bara 6 daga og Birna líka........ :D

Þetta er þá líklega orðið gott í bili....... Ég blogga sennilega ekki fyrr en ég verð næst á næturvakt um jólin þannig að þangað til.........Gleðileg jól öllsömul og farsælt nýtt ár, takk fyrir allt gamalt og gott sykurpúðarnir mínir......... hafiði það svo gott um jólin!:D

Jólakveðja

Guðlaug Ásta Gunnarsdóttir

p.s. Geiri og Sunna til hamingju með litlu snúlluna!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 00:11:28 / gullasta

langt síðan síðast...........

Góðan dag og gleðileg jól......

ég veit að það er nokkuð langt síðan ég bloggaði síðast en það er nú reyndar mjög góð skýring á því! Ég á nefnilega ekki tölvu, af því ég er nú flutt þá hef ég ekki aðgang að tölvu lengur en ég hef hugsað mér að festa kaup á einu stykki eða svo í allra nánustu framtíð........:lol:

Það er svo sem ekki neitt svakalega mikið að frétta. Mamma er á spítala og búin að vera þar í 2 vikur mjög gremjulegt mál og nenni ég ekki að útskýra það neitt frekar, hlakka til þegar hún kemur loksins heim ég er að verða flutt á spítalann að mér finnst.

Amma Lauga dó 15. nóv og var jarðaförin 24.nóv, mjög leiðinlegt en það var nú samt gott að hún fékk að kveðja blessunin, hvíl í friði elsku amma.

Ég verð nú að koma með einhver gleðitíðindi..............hmmmm:|

Jú ég keypti mér frystikistu og jólagardínur í dag, gleði, gleði!!:haha: mig er svo búið að vanta frystikistu að ég veit þið trúið því ekki, nú fyrst get ég byrjað að versla................! hehe:)

En jólin eru á næsta leiti og nóg að gera ég var að skreyta heima hjá mér í kvöld og er núna á næturvakt og er að fara að skreyta deildina! Ég hef enn ekki keypt eina einustu jólagjöf en veit hvað ég ætla að kaupa nema handa honum Kidda mínum ég á í smá vandræðum þar þannig að ef einhver er með hugmynd (GÓÐA OG HJÁLPLEGA HUMYND) þá er það vel þegið.

Eeeen ætli ég verði ekki að reyna að byrja að skreyta þannig að lengra verður þetta ekki í bili, er að fara í 7 daga frí!!!! jiiiiibbííí! :haha: ég og Kiddi erum að fara í einhverja útivistarferð um helgina með vinnunni hans.

kveðja Gulla

p.s. Gústa ég hitti Rose í fyrradag og hún er kasólétt og á að eiga á næstu dögum..........

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 13:48:19 / gullasta

Fréttir.....

Ég er nú reyndar í vinnunni en ákvað að skella inn smá frétt.........

Ég og hann Kiddi minn erum að flytja inn í íbúð sem við ætlum að leigja í vetur...... Hún er í Tjarnarlundi og bara ágæt svona rétt til að byrja með.......:)

og svo stóra fréttin.............. við erum búin að trúlofa okkur! Kallinn skellti sér á skeljarnar á föstudagskvöldið og gaf mér hring!!! :D Voða gaman, ég var eins og hálviti, vissi ekki neitt og hafði ekki hugmynd um hvernig ég átti að vera.........:haha:

En já þetta er allt í bili........... Bráðum koma blessuð jólin....

kveðja

Gulla ráðsetta:lol:


» 16 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 14:10:09 / gullasta

Leikhús, slátrun og tæknilegir örðugleikar..........

Jæja þá er það tilraun 32, er í tölvunni heima hjá mömmu, það er ómögulegt að koma inn bloggi á Maccanum!!! Ég er oft búin að reyna en færslan kemur bara aldrei inn!! :whut: Þannig að nú er ég heima hjá mömmu í eðlilegri tölvu og vonandi heppnast það í þetta skipti.........:D

En já allavega þá buðu pabbi og Stína mér og Kidda í leikhús á leikritið Óvita. Við skemmtum okkur konunglega og er þetta bara snilldar sýning og standa krakkarnir sig frábærlega í þessu, hvet alla til að sjá þetta...... Hitti Ástu frænku í leikhúsinu, þá töluðum við um að við þyrftum að fara að hittast meira en þó hefur það ekki enn gerst hmmmm............:S Maður er allt of latur við að fara í heimsóknir!

 Síðasta laugardagsmorgunn fór ég svo í sveitina að slátra með pabba og Stínu, ógeðslega dugleg!!!:lol: Það gekk bara líka svona glimrandi vel og vorum við bara nánast búin með þetta allt þegar ég þurfti að fara í vinnu! En það sem ég var að drepast oní rassgatið á mér af þreytu í vinnunni maður, eruði að grínast!!! já fínt já sæll...........:haha: Svo hélt Ólína upp á afmælið sitt á sunnudaginn ég kíkti að sjálfsögðu áður en ég fór að vinna...... Fullt af fólki og Stína reiddi fram alskyns góðgæti eins og henni einni er lagið.....

Eva átti líka afmæli á sunnudaginn, til hamingju sykurpúðinn minn!!!:lol: Og verður haldið uppá það á laugardagskvöldið næsta.....mikið gaman mikið grín!:haha: Mig langgar svo svaðalega á Ladda sýninguna að það er ekki fyndið lengur, það er uppselt á allar helgar í nóvember!!!:frown:

en jæja vill nú ekki fara að ofreyna mig strax....... segjum þetta bara gott í bili!

Sigga mín ekkert djúsí slúður....sorry!

kveð í bili

Gulls

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 01:12:25 / gullasta

Jæja komin aftur........

Sælir sykurpúðar!!!

Ég veit ég hef ekki bloggað neitt lengi en það vakti alla vega viðbrögð fólks til að kvitta aðeins!!

Hvað hefur gerst eftir Eyjar, hmmm.......... Ég er gengin út, loksins segja ábyggilega margir! Sá heppni heitir Kristján Baldur Valdimarsson, kallaður Kiddi, ágætis strákur, eða ég kann mjög vel við hann, yfirleitt.........:haha:

Matti sem við vorum með í Guatemala kom norður og var hjá okkur systrunum síðustu helgina í ágúst, þá var aðeins djammað, ógeðslega gaman að hitta hann. Mikið gaman, mikið grín!! :haha:

Ég og Hulda systir fórum svo suður um síðustu helgi þar var mikið verslað og djammað með Matta, Klebba, Stebba, Birnu og Sæunni á föstudagskvöldið, fórum á Dubliners, það var geðveikt gaman. Við gerðum svo heiðarlega tilraun systurnar til að versla meira á laugardeginum en það gekk ekki eins vel, smá heilsuleysi í gangi...... :) Kiddi flaug svo suður seinnipartinn á laugardaginn eftir sandspyrnuna þar sem honum gekk ekki nógu vel, því miður. :$ En við fórum svo í keilu á laugardagskvöldið, engin stemming fyrir neinu djammi, en það er alltaf gaman í keilu!!! :haha:

Svo stefni ég á Londonferð í nóvember ef fjárhagurinn leyfir, Gústa mín ég þarf að hringja í þig geturu sent mér símanr þitt........ ég virðist hafa týnt því......:S

Jæja ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili.........

Ef þið verðið dugleg að kvitta þá verð ég duglegri að blogga sykurpúðar!!! :haha:

Gullan á næturvakt :)


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 23:36:09 / gullasta

Drullisti til að kvitta!!!!

Viljiði gjöra svo vel og kvitta annars hætti ég algerlega að blogga......... 50 heimsóknir á síðuna í dag, 68 í gær og ekki eitt einasta helv.... kvitt!!! :evil: :whut::frown: 

» 24 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 01:25:04 / gullasta

Að skemmta sér á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.........

Hvílík snilld!!!!!!!!!!

Ég var semsagt að koma af þjóðhátíð og það er alveg öruggt mál að ég fer aftur að ári og ætla bara hreinlega ekki að missa af einni einustu þjóðhátíð það sem eftir lifir............ og hana nú! :lol:

Við fórum á miðvikudaginn suður á 2 bílum hele famelien og áttum far með Herjólfi kl. 19.30 um kvöldið. Ég var reyndar nýkomin af næturvakt (eins og alltaf) og alveg ósofin. við stoppuðum aðeins í borginni til að hitta hana Stefaníu okkar áður en við fórum í Herjólfinn. Siglingin var bara ljúf og svaf ég alla leiðina og enginn varð sjóveikur..................:) Við komum svo til eyja og í bústaðinn okkar, sem var algjör snilld,  um ellefu leytið um kvöldið, ég drakk einn bjór og fór svo bara að sofa.

Á fimmtudeginum var bara sól og bongó blíða og þar byrjaði ballið. Gulla frænka sótti mig, Hemma, Jón og Jennýju (systurdóttur Gunna) og rúntaði með okkur um allan bæ á meðan ég og Hemmi duttum í´ða, snillingar! 8) Um kvöldið fórum við svo á Húkkarann sem var ekkert spes, bara mjög ungir krakkar, og þá kom reyndar rok og rigning í fyrsta og eina skiptið á þjóðhátíð....... veðrir lék við okkur þrátt fyrir verstu spár.

Á föstudagskvöldið byrjaði ballið fyrir alvöru. við byrjuðum að drekka heima í bústað seinni partinn, fórum í drykkjuleik og fleira............ Héldum svo niður í dal um átta og fundum okkur góðan stað í brekkunni, sungum svo með Jónsa, Magna, Toby og Rottweiler og drukkum að sjálfsögðu! svo var brennan á fjósakletti og svaðaleg flugeldasýning!!!

Á laugardagskvöldið var sama prógrammið fyrir utan brennuna og flugeldana nema hvað þá fórum við líka í hvítu tjöldin og hittum Helenu og Jón Braga og Margréti frænku og Óskar og Lóu og svo villtist ég inn í tjaldið til hins eina sanna Árna Johnsen sem var bara helvíti fínn og bauð mér upp á flatbrauð með hangikjöti........... Svööööööl!!!!:haha:

Sunnudagskvöldið var svo mesta snilldin, Bubbi, Árni félagi minn með brekkusöngin, blysin og flugeldasýningin og að sjálfsögðu Jónsi, Magni og Toby á sínum stað........ Þetta var bara snilld og maður fylltist bara lotningu þegar kveikt var á blysunum og brekkusöngurinn sunginn og allt heila klabbið........ ég, Birna, Róbert (kærastinn hennar) og Jenný fórum svo heim í bústað um átta leytið á mánudagsmorguninn, ég hitti Erp Rottweiler hundinn sjálfan á leiðinni útúr dalnum og við spjöllum heilmikið og dáðumst að snilli hvors annars og svo fékk ég að sjálfsögðu 2 kossa...............Svööööööööl ég!!!!:haha: ég og Birna sátum svo í pottinum ógeðslega fyndnar með bjór og allt til kl. 13 , í 5 tíma sem sagt, bara gaman hjá okkur.........

Síðan svaf ég bara allt fimmtudagskvöldið og þar til 6 á þriðjud. morgun þegar við fórum í Herjólf þar sem Jón varð illa sjóveikur og lá inni á einhverju fatlaðra klósetti og ældi eins og múkki.......:)

En allavega Þjóðhátíðin var allavega frábær, yndisleg, einstök og tær snilld, ég á bara ekki orð til að lýsa því almennilega ég er bara í sæluvímu!!!:haha: og ég vil bara þakka öllum sem ég djammaði með fyrir frábæra helgi og þá sérstaklega familíunni og Birnu og Róbert..............:haha: Takk elskurnar!

kveð í bili með sælubros á vör

Gulla Þjóðhátíðar sjúklingur nr 1


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 04:00:00 / gullasta

Lífið er yndislegt..........

Jæja sykurpúðar þá er nú komið að nýju bloggi, alveg dæmalaust hvað ég orðin dugleg í þessu asskotans bloggi...........:)

Ég fór á staffadjamm síðasta fimmtudag heima hjá Töru og að sjálfsögðu var vangefið gaman.......... Sumir urðu holgóma af drykkju aðrir héldu sig við vatn og bjór..........1 bjór, 1 glas af vatni, 1 bjór, 1 glas af vatni............ einhver sagði að þetta væri rétta leiðin til að verða ekki þunnur. blaaaa tímasóun!! :lol:  Tara missti sig all svaðalega í rjómanum, þeir sletta rjómanum (skyrinu) sem eiga´nn, eða eitthvað svoleiðis, og fór Dagný ekki vel útúr því slettiríi mér fannst það samt geðveikt fyndið.......... það allavega gerðust margir misgáfulegir hlutir í þessu partýi, gaman að því, og vona ég að við höldum annað sem allra fyrst. :haha:

þá eru það bara Eyjar á morgun, Eyjar beibí, og ætla ég að næla í folann hann Toby á húkkaraballinu...........yeah right!! maður getur nú samt alltaf látið sig dreyma og eins og allir vita er ég náttúrulega dead sexy...........:haha: en það er engin spurning að það verður brjálað stuð og mun ég að sjálfsögðu fara hamförum í eyjum............ Fékk gott ráð frá henni Töru beib en það var þannig að ég þyrfti bara að pakka niður sexy nærfötum og smokkum......... Ég er ekki alveg viss hversu sexy ég yrði á nærfötunum með bjór í annarri og smokka í hinni í rigningu og stormi.......... má reyna það, takk fyrir gott ráð Tara mín, as always! ;)

aaall righty then, best að fara að vinna eitthvað, já ég er á næturvakt ekkert nýtt í því............

 go fuck yourself......... setning sem hljómaði mikið í staffapartýinu og er búin að sitja föst í hausnum á mér síðan.

kv. fuckface á leið til Eyja

p.s. afsakið orðbragðið rúsínubossar........ kvitt kvitt 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 01:38:37 / gullasta

Alltaf gaman í vinnunni......

hæ öll sömul.........

Þar sem ég er í vinnunni akkúrat núna á 7. næturvaktinni minni í þessari törn þá ákvað ég að skella inn smá bloggi! :) glæsilegur árangur hjá mér, ég er öll að koma til í blogginu!! :haha:

Bara ein næturvakt eftir af þessari törn og svo er ég komin í 2ja daga frí þá 3 næturvaktir og svo EYJAR beibí!!!!!

Ég hef nánast engan séð fyrir utan systur mína og vinnufélagana í meira en viku! Og svo rúmið mitt að sjálfsögðu, nýja rúmið mitt sem er alveg stórkostlegt, bara svo þið vitið það...........mmmmmm :P

Ég fór reyndar í fjölskyldu grill heima á Svertingsstöðum á föstudaginn. Gaman að hitta allt fólkið og nýja og gamls fjölskyldumeðlimi....... þið getið séð myndir inni á síðunni hjá Konna og Þorbjörgu www.123.is/svertingsstadir og líka hjá Gullu frænku.........

Nú er Gústa mín samt farin aftur :cry: en ég sé hana væntanlega í haust. Hef hugsað mér að reyna að kíkja til hennar í september, bíð spennt eftir vaktaskýrslunni minni fyrir september svo ég geti kannski pantað mér flug og svona...............:D

Við Hulda erum búnar að koma okkur sæmilega fyrir í nýju íbúðinni, það er svo geðveikt kósí hjá okkur og sambúðin gengur bara glymrandi......... Innflutningspartý er hinsvegar ekki fyrirhugað fyrr en í september þegar við finnum sameiginlega frí helgi.......... En allir (sem við þekkjum) eru að sjálfsögðu velkomnir í heimsókn fyrr........:P

Jæja ég held það sé nú nóg komið í bili......... Veriði svo dugleg að kvitta svo ég verði dugleg að skrifa....... Reyni svo að setja inn myndir þegar netið kemur loksins heima!

hafiði það nú gott ungarnir mínir

Gulla gæs

  


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 03:42:16 / gullasta

Bull og meira bull.......

Sko ég er að fara að blogga enn á ný án þess að hafa nokkuð sérstakt að segja..........

ég ætla að skrifa með þessu stóra letri fyrir þessa eldri sem eiga erfitt með að lesa af skjánum, nema kannski í smá fjarlægð, eins og blessuð móðir mín..........:haha:

En það er nú kannski helst að ég er að fara að flytja inn með henni systur minni í nýju íbúðina hennar í Rimasíðu, til hamingju með kofann systir góð!!! Enn hún er búin að vera alla vikuna að mála pleisið meðan ég hef legið heima í helv..... drullu skíta pest með hor niður á hné og hita og hausverk en alltaf jafn kynþokkafull samt sem áður, maður losnar ekki svo auðveldlega við allan þennan kynþokka........ hehe ;) En ég ætla nú að reyna að drullast til að mála herbergið mitt á morgun, er búin að vera á næturvöktum og verður því ekki mikið úr verki þessa dagana........ Þarf svo að fara á mánudaginn í Svefn og Heilsu og kaupa mér nýtt rúm. Þrýstijöfnunarrúm, hah hvorki meira né minna Queen size að sjálfsögðu, dugir ekkert minna fyrir prinsessuna! hehe :lol:

Það er nú kannski óþarfi að segja það en ég geri það samt. Ég get ekki beðið eftir Þjóðhátíðinni!!!!!!! Shiiiiiit hvað það verður sjúkt gaman! Sitja í brekkunni með heitt kakó með litlum sykurpúðum og rjóma og syngja söngva og hitta ættingjana............ Spaug þið vitið öll að svona fer þetta ekki ég verð plokkuð upp úr einhverjum skurði á mánudeginum........ hehe nei kannski ekki alveg. en ég get sagt ykkur það að ég verð mjög hress og kát og stend fyrir mínu og læt ekkert stoppa mig......... ;)

En er þetta ekki bara að verða gott í bili...........

Og muniði svo að kvitta þó ekki standi nema bara: kvitt kvitt sykurpúði. eða eitthvað, ok?

Lifið heil

Gulla Snilli


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 18:38:55 / gullasta

gleði, gleði, gleði......

nei ég segi nú bara svona........ Ég veit að ég er endalaust löt að blogga, en það gerist bara aldrei neitt spennandi og ef eitthvað spennandi gerist þá man ég það aldrei þegar ég er að blogga! En Hemmi kom heim í gær sem er mikið gleðiefni því þá þarf ég ekki lengur að öfunda hann fyrir að vera ennþá úti........ ég er strax farin að hugsa mér til hreyfings aftur og spá í hvert ég geti farið næst. En ég hef ákveðið að fara ekki út í íbúðakaup en mun leigja hjá Huldu systur sem er að kaupa sér íbúð í Rimasíðu og svo ætla ég í háskóla á næsta ári í hjúkrun.......... Risastórt skref fyrir mig!!! en ég reyni nú að skreppa í einhverjar smá ferðir í vetur, er að hugsa um að kíkja til London í haust til Gústu (Hún veit sam ekkert af því ennþá) og svo kannski til Dublin fyrir jólin og svo eru einhverjar pælingar um að fara til Florida um páskana með pabba og Stínu......... :) Annars er ég búin að vera alveg geggjað dugleg í ræktinni. komin tími til að hlaupa af sér helvítis spikið!!! En ég er orðin það heilsusamleg að ég drekk nánast engan bjór og alveg afskaplega lítið áfengi bara í heildina, hef slakað ótrúlega mikið á djamminu. en það verður svo sannarlega tekið á því á þjóðhátíð!!!! En þetta er nú barasta orðið gott, nenni ekki meiru þarf að fara og grilla......... og muna kvitt kvitt........... og ég reyni að vera duglegri! Gulla heilsufrík

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill